Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 14:57
Brynjar Ingi Erluson
Madrídingurinn frá í sjö vikur
Mynd: EPA
Spænski miðjumaðurinn Dani Ceballos verður ekki með Real Madrid næstu sjö vikurnar vegna meiðsla í vöðva en þetta staðfestir félagið á heimasíðu sinni í dag.

Ceballos er 29 ára gamall og komið við sögu í 22 leikjum með Real Madrid á tímabilinu.

Hann kom inn af bekknum í 2-1 tapinu gegn Osasuna í gær og varð þar fyrir meiðslum.

Real Madrid segir að hann verði frá næstu sjö vikur vegna meiðsla í kálfavöðva.

Ekki góðar fréttir fyrir Madrídinga sem þurfa breidd á mikilvægustu mánuðum tímabilsins.

Ceballos hefur verið á mála hjá Real Madrid frá 2017, en hann eyddi tveimur tímabilum á láni hjá Arsenal frá 2019 til 2021.
Athugasemdir
banner