Newcastle vill læra af síðasta sumri - Arsenal í baráttu við PSG um leikmann - Man Utd búið að krækja í ungan leikmann
   þri 22. apríl 2025 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Muller hafnaði Fiorentina
Mynd: EPA
Bayern Munchen goðsögnin Thomas Muller yfirgefur félagið í sumar þegar samningurinn hans rennur út.

Muller er 35 ára og hefur spilað allan sinn feril hjá Bayern en það er ljóst að tímanum hans hjá félaginu lýkur í sumar.

Fréttir fóru á kreik um að Fiorentina hefði áhuga á að fá hann til sín. Christian Falk hjá þýska miðlinum Bild segir að ítalska félagið hafi sett sig í samband við leikmanninn en hann hafi ekki áhuga á að ganga til liðs við Fiorentina.

Það er því útlit fyrir það að Muller verði ekki liðsfélagi Alberts Guðmundssonar. Það er talið líklegast að Muller endi í MLS-deildinni í Bandaríkjunum.
Athugasemdir
banner