Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fertugur Cazorla hjálpaði uppeldisfélaginu upp í efstu deild
Santi Cazorla ásamt Mikel Arteta og Alexis Sanchez
Santi Cazorla ásamt Mikel Arteta og Alexis Sanchez
Mynd: EPA
Santi Cazorla, fyrrum leikmaður Arsenal, gekk til liðs við uppeldisfélagið sitt Real Oviedo árið 2023 og átti stóran þátt í að koma liðinu upp í efstu deild í fyrsta sinn í 24 ár í gær.

Hann skoraði í 1-1 jafntefli gegn Almería í undanúrslitum umspilsins og skoraði síðan úr vítaspyrnu í 3-1 sigri gegn Mirandes í úrslitum í gær en liðið vann viðureignina samanlagt 3-2.

Cazorla er orðinn fertugur en hann var í herbúðum Real Oviedo frá 1996-2003 en neyddist til að yfirgefa félagið vegna fjárhagsvandræða sem urðu til þess að unglingastarfið var lagt niður.

Áratug síðar lenti félagið aftur í vandræðum en Cazorla var einn af þúsundum stuðningsmanna og fyrrum leikmanna sem fjárfestu í hlutabréfum í félaginu til að halda því gangandi.

Hann meiddist á hásin árið 2016 og gekkst undir 11 aðgerðir til að laga vandann. Ein aðgerðin leiddi til drepbólgu og læknarnir sögðu Cazorla ætti að vera feginn að geta gengið aftur, hvað þá að spila.
Athugasemdir
banner
banner