Ansu Fati, leikmaður Barcelona á Spáni, verður líklega ekki áfram í herbúðum félagsins fyrir komandi tímabil, en þetta segir Deco, yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona, í viðtali við LaVanguardia.
Fati, sem kemur úr La Masia-akademíu Barcelona, en fengið fá tækifæri síðan Hansi Flick tók við.
Spánverjinn er ósáttur með stöðuna og er allt útlit fyrir að hann sé á förum í sumar.
„Svona ef við hugsum um aldur hans og feril þá er ljóst að Ansu Fati getur ekki verið áfram á meðan hann er ekki að spila. Ef hann fer þá fer hann á láni. Hann er 23 ára gamall en fólk talar um hann eins og hann sé þrítugur. Hann hefur enn tíma til að vaxa og læra,“ sagði Deco.
Fati var spáð miklum frama hjá Barcelona og á tíma maðurinn sem átti að taka við kyndlinum af Lionel Messi. Fati fékk hina guðdómlegu 'tíu' hjá félaginu, en meiðsli hafa haldið honum aftur og eru nú aðrir leikmenn á undan honum í goggunarröðinni.
Athugasemdir