
Kristján Guðmundsson, þjálfari Vals, gaf það sterklega til kynna að hann ætli sér að styrkja sóknarlínuna í leikmannaglugganum.
Valskonur hafa farið tímabilið illa af stað og er þrettán stigum frá toppliði Breiðabliks eftir tíu umferðir.
Þær unnu Þór/KA í lok apríl og fóru síðan í gegnum sex leiki án þess að sigra áður en liðið sótti langþráðan sigur gegn FH um helgina.
Valur hefur skorað 12 mörk í deildinni og aðeins tvö lið sem hafa gert færri mörk á tímabilinu. Kristján ræddi við Fótbolta.net eftir sigurinn á FH og talaði þar um leikmannamálin.
„Já, vonandi koma einhverjar til baka sem hafa verið í meiðslum. Við eigum von á 1-2, það er alveg rétt og munum skoða leikmannagluggann 1-2 leikmönnum og munum gera það.“
„Það fer nú eftir hvað við sjáum og hverjar eru að koma til baka, en það er ljóst að við þurfum að bæta markaskorun og þurfum aðstoð í þær stöður,“ sagði Kristján í viðtalinu.
Sumarglugginn opnar 17. júlí og verður síðan skellt í lás þann 13. ágúst.
Athugasemdir