Ekki eru taldar miklar líkur á því að Chelsea kaupi markvörð í sumarglugganum.
Chelsea hefur átt í viðræðum við AC Milan um franska markvörðinn Mike Maignan síðustu vikur, en samkvæmt Sky Sports hefur félagið yfirgefið viðræðurnar.
Lundúnafélaginu var boðið að fá Maignan en ákvað að draga sig snemma út og lagði aldrei fram tilboð í Frakkann.
Sky segir það ólíklegt að félagið muni fá inn nýjan markvörð í sumar.
Robert Sanchez og Filip Jörgensen voru aðalmarkverðir félagsins á síðustu leiktíð og þá eru þeir Mike Penders og Djordje Petrovic einnig á mála hjá félaginu.
Einn verður lánaður til Strasbourg í sumar og þá verður annar markvörður seldur. Líklegasta sviðsmyndin er að Penders verði lánaður út og Petrovic seldur.
Athugasemdir