Jarell Quansah, miðvörður Liverpool á Englandi, er á leið til Bayer Leverkusen fyrir 35 milljónir punda, en þetta fullyrðir Fabrizio Romano á X í dag.
Quansah, sem er 22 ára gamall, braut sér leið inn í hópinn hjá Liverpool á síðasta tímabili og síðan þá spilað 58 leiki og skorað þrjú mörk í öllum keppnum.
Englendingurinn átti ágætis fyrsta tímabil undir Jürgen Klopp, en náði ekki að fylgja því á eftir undir Arne Slot.
Liverpool hefur samþykkt að selja U21 árs landsliðsmanninn til Bayer Leverkusen fyrir 30 milljónir punda og bætast síðan 5 milljónir við ef ákveðnum skilyrðum er mætt.
„Here we go!“ segir Romano og því stutt í að hann verði kynntur hjá Leverkusen.
Quansah gerir fimm ára samning við Leverkusen, en í samningnum verður klásúla sem leyfir Liverpool að kaupa hann til baka í framtíðinni.
Liverpool fer nú beint í það að finna nýjan miðvörð inn í hópinn, en Marc Guehi, leikmaður Crystal Palace, hefur verið sterklega orðaður við félagið síðustu daga.
Athugasemdir