Leicester City ætlar sér að láta hollenska stjórann Ruud van Nistelrooy taka poka sinn í næsta mánuði og er Sean Dyche, fyrrum stjóri Everton og Burnley, sagður líklegastur til að taka við keflinu.
Van Nistelrooy tók við Leicester í nóvember á síðasta ári eftir að Steve Cooper var rekinn.
Leicester var þá í 16. sæti deildarinnar en Van Nistelrooy náði ekki snúa gengi liðsins við og fór það svo að liðið féll niður í B-deildina.
Sun segir að Van Nistelrooy verði rekinn frá Leicester þó ekki fyrr en í næsta mánuði. Leicester er að bíða eftir að nýtt reikningstímabil hefjist og um leið og það gerist verður brottrekstur hann staðfestur.
Sean Dyche, fyrrum stjóri Everton og Burnley, er talinn líklegastur til að taka við.
Dyche náði eftirtektarverðum árangri með Burnley á árunum 2012 til 2022, þar sem hann stýrði liðinu meðal annars upp í úrvalsdeild og tryggði því stöðugleika þar árum saman. Hann var þó látinn fara vorið 2022 eftir slaka frammistöðu og liðið í fallbaráttu.
Í upphafi árs 2023 sneri Dyche aftur í boðvanginn þegar hann tók við Everton. Þar tókst honum að halda liðinu uppi tvö tímabil í röð þrátt fyrir erfiðar aðstæður, meðal annars fjárhagsvanda og refsipunkta. Hann var þó látinn fara úr starfi í janúar 2025.
Athugasemdir