Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 14:00
Brynjar Ingi Erluson
Bayern gerir lokatilraun til að krækja í Nico
Mynd: EPA
Þýska félagið Bayern München hefur gert lokatilraun til að reyna að krækja í Nico Williams, leikmann Athletic Bilbao, en þetta kemur fram í L'Equipe í dag.

Eins og staðan er núna er Barcelona líklegasti áfangastaður spænska landsliðsmannsins.

Samkvæmt spænskum miðlum hefur hann náð samkomulagi við Barcelona um kaup og kjör, en Börsungar eru í viðræðum við Athletic og La Liga um hvernig sé best að greiða 58 milljóna evra klásúluverð leikmannsins.

Nico hefur einnig verið orðaður við Bayern München, en samkvæmt L'Equipe hefur þýska félagið ekki gefist upp á að reyna fá vængmanninn.

Félagið hefur gert lokatilraun til að reyna sannfæra hann um að koma, en það hefur gert honum samningstilboð sem mun færa honum 10 milljónir evra í árslaun og 2 milljónir í bónuslaun.

Óvíst er hvort þetta muni vera nóg til að sannfæra Nico sem er sagður spenntari fyrir hugmyndinni að spila með Barcelona, þar sem margir liðsfélagar hans í A-landsliðinu spila.
Athugasemdir