Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 22. október 2025 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rashford: Þetta er ástæðan fyrir því að ég kom hingað
Mynd: EPA
Marcus Rashford er að njóta lífsins í botn í Barcelona þessa dagana.

Rashford skoraði tvennu þegar Barcelona vann öruggan 6-1 sigur gegn Olympiakos í Meistaradeildinni í gær. Rashford hefur spilað 12 leiki skorað fimm mörk og lagt upp sex í spænsku deildinni og Meistaradeildinni.

Næsti leikur Barcelona er gegn erkifjendunum í Real Madrid á útivelli á sunnudaginn.

„Leikurinn gegn Real Madrid er stórleikur, þetta er ástæðan fyrir því að ég kom hingað, ég hlakka til," sagði Rashford.
Slapp
Athugasemdir
banner