Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 22. október 2025 15:00
Elvar Geir Magnússon
Veit ekki hversu lengi Mavropanos verður frá
Mavropanos í leik með West Ham.
Mavropanos í leik með West Ham.
Mynd: EPA
Nuno Espirito Santo, stjóri West Ham, greindi frá því á fréttamannafundi í dag að varnarmaðurinn Konstantinos Mavropanos sé meiddur og á leið í myndatöku.

„Það er verið að skoða meiðsli hans betur. Ég get ekki svarað því hversu lengi hann verður frá en hann verður allavega ekki með á föstudaginn," segir Nuno.

West Ham heimsækir Leeds í ensku úrvalsdeildinni á föstudaginn en Hamrarnir eru í 19. sæti og hafa verið í brasi. Stuðningsmenn eru margir hverjir pirraðir á slöki gengi.

„Það er okkar að tengja við stuðningsmenn að nýju. Það er í okkar höndum að stuðningsmenn mæti, njóti og styðji okkar. Við erum ekki að sækja nægilega mörg stig og það er helsta vandamálið. Til að fá fleiri stig þurfum við að bæta okkar leik. Við þurfum að spila betur," segir Nuno.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 31 15 10 6 56 43 +13 55
4 Aston Villa 31 16 6 9 42 37 +5 54
5 Liverpool 31 14 7 10 50 42 +8 49
6 Chelsea 31 13 9 9 53 38 +15 48
7 Brentford 31 13 7 11 46 42 +4 46
8 Everton 31 13 7 11 37 35 +2 46
9 Fulham 31 13 5 13 43 44 -1 44
10 Brighton 31 11 10 10 41 37 +4 43
11 Sunderland 31 11 10 10 32 36 -4 43
12 Newcastle 31 12 6 13 44 45 -1 42
13 Bournemouth 31 9 15 7 46 48 -2 42
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 31 7 12 12 37 48 -11 33
16 Nott. Forest 31 8 8 15 31 43 -12 32
17 Tottenham 31 7 9 15 40 50 -10 30
18 West Ham 31 7 8 16 36 57 -21 29
19 Burnley 31 4 8 19 33 61 -28 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Slapp
Athugasemdir
banner
banner