Heimild: KSÍ
Glódís Perla Viggósdóttir og Hákon Arnar Haraldsson eru fótobltafólk ársins 2025 samkvæmt niðurstöðu leikmannavals KSÍ.
Glódís Perla Viggósdóttir er fótboltakonakona ársins í fjórða sinn og fjórða árið í röð. Líkt og áður hefur hún verið einn af lykilleikmönnum Bayern München og íslenska landsliðsins og er fyrirliði beggja liða. Glódís varð þýskur meistari með Bayern í vor sem leið og tapaði liðið aðeins einum leik í deildinni á tímabilinu. Glódís lék 18 leiki í deildinni og skoraði í þeim tvö mörk.
Glódís varð einnig þýskur bikarmeistari er Bayern München vann 4-2 sigur á Werder Bremen í úrslitaleik keppninnar. Glódís lék fjóra leiki í bikarkeppninni og skoraði í þeim eitt mark. Glódís lék sex leiki í Meistaradeild UEFA, en þar datt Bayern út í 8-liða úrslitum keppninnar eftir tap gegn Lyon. Glódís lék 10 A-landsleiki á árinu og þar af alla leiki liðsins á EM 2025. Á núverandi tímabili hefur Glódís leikið níu leiki í deild, einn í þýska bikarnum og fimm í Meistaradeild UEFA.
2. sæti - Cecilía Rán Rúnarsdóttir
3. sæti - Sandra María Jessen
Hákon Arnar Haraldsson er fótboltamaður ársins í þriðja sinn. Hákon Arnar hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár og er varafyrirliði liðsins. Á árinu lék níu leiki með liðinu á árinu. Hann hefur alls leikið 28 A-landsleiki og skorað í þeim þrjú mörk.
Hákon Arnar lék 25 leiki á liðinu tímabili með LOSC Lille í frönsku úrvalsdeildinni og skoraði í þeim fimm mörk. Auk þess skoraði hann tvö mörk í sex leikjum í Meistaradeild UEFA. Hákon hefur leikið frábærlega á nýju tímabili, leikið 15 leiki í deildinni og skoraði í þeim fimm mörk. Í Evrópudeildinni hefur hann leikið sex leiki og skorað eitt mark.
2. sæti - Albert Guðmundsson
3. sæti - Elías Rafn Ólafsson
Athugasemdir



