Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mán 23. febrúar 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
20 ára aldursmunur á frændum í sóknarlínu Völsungs
Mynd: Völsungur / Aðsend
Völsungur tók á móti ungu liði ÍA í B-deild Lengjubikarsins í gær og tapaði stórt eftir að hafa komist í forystu snemma leiks.

Framlína Húsvíkinga var áhugaverð í leiknum í gær þar sem Elfar Árni Aðalsteinsson og systursonur hans Sæþór Orri Skarphéðinsson mynduðu hana, en á þeim er 20 ára aldursmunur.

Elfar Árni, sem lék lengst af með KA á sínum ferli, er 35 ára gamall en Sæþór Orri er ekki nema 15 ára.

Elfar Árni skoraði 7 mörk í 20 leikjum í Lengjudeildinni í fyrra á meðan frændi hans setti 10 mörk í 28 leikjum með 3. flokki.

Til gamans má geta að eldri bróðir Elfars Árna er Baldur Ingimar Aðalsteinsson, sem ólst upp hjá Völsungi og lék 8 leiki fyrir íslenska landsliðið.

   22.02.2026 17:49
Lengjubikarinn: Ungir Skagamenn skoruðu fimm fyrir norðan

Athugasemdir
banner
banner