Það var ótrúleg dramatík í leik Fenerbahce og Kasimpasa í tyrknesku deildinni í kvöld.
Andri Fannar Baldursson var í byrjunarliði Kasimpasa en Fenerbahce var með öll völd á vellinum í seinni hálfleik. Það var markalaust fram í uppbótatíma en þá dró heldur betur til tíðinda.
Þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma fékk leikmaður Kasimpasa rautt spjald og tveimur mínútum síðar skoraði Marco Asensio fyrir Fenerbahce og virtist vera tryggja liðinu sigurinn.
Á elleftu mínútu uppbótatímans kom fyrirgjöf inn á teig Fenerbahce og Andri Fannar skallaði boltann til Jim Allevinah sem skoraði og bjargaði stigi fyrir Kasimpasa en þetta var eina tilraun liðsins að marki í seinni hálfleik.
Kasimpasa er í 16. sæti með 20 stig eftir 23 umferðir. Liðið er stigi frá öruggu sæti. Fenerbahce mistókst að jafna topplið Galatasaray að stigum en Fenerbahce er með 53 stig í 2. sæti.
Athugasemdir


