Reynsluboltinn Dick Advocaat er hættur sem þjálfari Curacao þegar aðeins nokkrir mánuðir eru í HM.
Curacao bætti met Íslands í nóvember síðastliðnum er eyjaríkið tryggði sér inn á HM og varð þannig fámennasta þjóðin í sögunni til að gera slíkt. Það búa aðeins um 150 þúsund á Curacao.
Curacao bætti met Íslands í nóvember síðastliðnum er eyjaríkið tryggði sér inn á HM og varð þannig fámennasta þjóðin í sögunni til að gera slíkt. Það búa aðeins um 150 þúsund á Curacao.
Advocaat varð jafnframt sá elsti í sögunni til að stýra liði inn á HM, 78 ára gamall.
Hann mun hins vegar ekki stýra liðinu í lokamótinu þar sem hann hefur núna ákveðið að hætta. Ástæðan er sú að dóttir hans er að glíma við veikindi og hann ætlar að vera henni við hlið.
Annar reynslumikill Hollendingur hefur verið ráðinn í staðinn, en hinn 63 ára gamli Fred Rutten mun stýra liðinu á HM. Síðast var hann aðstoðarmaður Ruud van Nistelrooy hjá PSV Eindhoven.
Athugasemdir


