Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mán 23. febrúar 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kolbeinn erkiengill ársins hjá Gautaborg
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Svansson
Kolbeinn Þórðarson hefur hlotið nafnbótina erkiengill ársins hjá sænska félaginu IFK Göteborg.

Erkiengillinn eru sérstök verðlaun sem félagið veitir á hverju ári til leikmanns sem hefur sýnt Göteborg sérstaklega mikla tryggð. Leikmaður getur aðeins unnið þessi verðlaun einu sinni á ferlinum.

Kolbeinn fær verðlaunin fyrir árið 2025 en miðjumaðurinn er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum fyrir sína óbilandi baráttu og dugnað á miðsvæðinu.

Kolbeinn er alvöru liðsmaður sem setur liðsheildina í fyrsta sæti og á það til að gera gæfumuninn í mikilvægum leikjum. Til að mynda hefur Kolbeinn skorað í síðustu tveimur af þremur nágrannaslögum gegn GAIS og í bæði skiptin stóð Gautaborg uppi sem sigurvegari og þá gerði hann sigurmarkið gegn Malmö í þarsíðustu viðureign liðanna.

Kolbeinn fær verðlaunin afhent 8. mars í upphitun fyrir næsta heimaleik liðsins í sænska bikarnum, gegn Degerfors IF.
Athugasemdir
banner