Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   mán 23. febrúar 2026 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sterling kom inn af bekknum gegn Nökkva
Mynd: EPA
Feyenoord vann 2-1 gegn Telstar í efstu deild hollenska boltans í gær og kom Raheem Sterling inn af bekknum á 61. mínútu.

Þetta var í fyrsta sinn sem Sterling spilar keppnisleik í níu mánuði, eða síðan hann var á lánssamningi hjá Arsenal á síðustu leiktíð. Hann var geymdur í frystikistunni hjá Chelsea þar til félaginu tókst að semja við kantmanninn um starfslok fyrr í vetur.

Sterling fékk að spila síðasta hálftímann í gær en tókst ekki að hafa áhrif á úrslit leiksins. Þetta var þriðji sigur Feyenoord í röð og er liðið í góðri stöðu í öðru sæti hollensku deildarinnar, með sex stiga forystu á Willum Þór Willumsson og félaga í liði NEC Nijmegen. PSV Eindhoven trónir á toppinum og er svo gott sem búið að tryggja sér Hollandsmeistaratitilinn með fjórtán stiga forystu þegar tíu umferðir eru eftir.

Nökkvi Þeyr Þórisson var í byrjunarliði Telstar í gær og spilaði fyrstu 67 mínúturnar. Telstar er í fallsæti með 18 stig eftir 24 umferðir, sex stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner