Fyrrum markvörðurinn Edwin van der Sar segist hafa rætt tvisvar við Ed Woodward, fyrrum framkvæmdastjóra Manchester United, um að taka að sér hlutverk hjá félaginu fyrir nokkrum árum síðan.
Van der Sar er einn besti markvörður í sögu United en eftir að hanskarnir fóru upp á hilluna frægu, þá tók hann til starfa hjá Ajax í Hollandi.
Hann var í stóru hlutverki á bak við tjöldin hjá Ajax frá 2012 og var hann framkvæmdastjóri þar frá 2016.
Árangurinn var virkilega góður hjá Ajax á meðan Van der Sar var þar og var hann oft orðaður við stjórnendastöðu hjá Man Utd. Í viðtali í hlaðvarpinu The Overlap opinberaði Van der Sar að hann hefði rætt við Woodward um stöðu hjá United.
„Ég talaði tvisvar við Ed um að taka við stöðu hjá Manchester United. En á þeim tíma leit ég svo á að tíma mínum hjá Ajax væri ekki lokið," sagði Van der Sar.
Athugasemdir



