Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   lau 23. ágúst 2025 21:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Stórkostlegur viðsnúningur hjá Barcelona
Mynd: EPA

Barcelona vann ótrúlegan endurkomusigur gegn nýliðum Levante í 2. umferð spænsku deildarinnar í kvöld.

Ivan Romero kom Levante yfir eftir stundafjórðung. Hann lék auðveldlega á Pau Cubarsi og skoraði með skoti úr teignum.

Mallorca fékk vítaspyrnu seint í uppbótatíma fyrri hálfleiks þegar Alejandro Balde fékk boltann í höndina. Jose Luis Morales skoraði úr vítinu og kom Levante í tveggja marka forystu. Marcus Rashford var í byrjunarliði Barcelona en var tekinn af velli í hálfleik.

Barcelona byrjaði seinni hálfleikinn gríðarlega vel en liðið var búið að jafna leikinn þegar seinni hálfleikurinn var sjö mínútna gamall. Pedri minnkaði muninn þegar hann skoraði með glæsilegu skoti fyrir utan teiginn.

Ferran Torres jafnaði metin eftir hornspyrnu frá Raphinha. Það var síðan ótrúleg dramatík þegar Unai Elgezabal varð fyrir því óláni að skalla boltann í eigið net eftir fyrirgjöf frá Lamine Yamal í uppbótatíma og þar við sat.

Atletico Madrid fékk nýliða Elche í heimsókn Alexander Sorloth kom Atletico yfir snemma leiks en Rafa Mir bjargaði stigi fyrir Elche með marki stuttu síðar.


Mallorca 1 - 1 Celta
0-1 Javi Rueda ('38 )
1-1 Mateu Morey ('88 )

Atletico Madrid 1 - 1 Elche
1-0 Alexander Sorloth ('8 )
1-1 Rafa Mir ('15 )

Levante 2 - 3 Barcelona
1-0 Ivan Romero ('15 )
2-0 Jose Luis Morales ('45 , víti)
2-1 Pedri ('49 )
2-2 Ferran Torres ('52 )
2-3 Unai Elgezabal ('90 , sjálfsmark)


Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 29 24 1 4 78 28 +50 73
2 Real Madrid 29 22 3 4 63 26 +37 69
3 Villarreal 29 18 4 7 54 34 +20 58
4 Atletico Madrid 29 17 6 6 49 28 +21 57
5 Betis 29 11 11 7 44 37 +7 44
6 Celta 29 10 11 8 41 35 +6 41
7 Real Sociedad 29 10 8 11 44 45 -1 38
8 Getafe 29 11 5 13 25 31 -6 38
9 Athletic 29 11 5 13 32 41 -9 38
10 Osasuna 29 10 7 12 34 35 -1 37
11 Espanyol 29 10 7 12 36 44 -8 37
12 Valencia 29 9 8 12 32 42 -10 35
13 Girona 29 8 10 11 31 44 -13 34
14 Vallecano 29 7 11 11 28 35 -7 32
15 Alaves 29 8 7 14 30 41 -11 31
16 Sevilla 29 8 7 14 37 49 -12 31
17 Elche 29 6 11 12 38 46 -8 29
18 Mallorca 29 7 7 15 34 47 -13 28
19 Levante 29 6 8 15 34 48 -14 26
20 Oviedo 29 4 9 16 20 48 -28 21
Slapp
Athugasemdir
banner
banner