Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
   lau 24. janúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Real á útivelli í toppbaráttuslag
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það er mikið af spennandi leikjum í efstu deild spænska boltans í dag og hefst veislan með viðureign Rayo Vallecano gegn Osasuna sem eru jöfn í neðri hluta deildarinnar.

Liðin eiga 22 stig eftir 20 umferðir og eru þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Valencia er með 20 stig í fallbaráttunni og tekur á móti spútnik liði Espanyol sem er þó búið að misstíga sig í síðustu umferðum. Espanyol er að missa af meistaradeildarbaráttunni eftir tvo tapleiki og eitt jafntefli í síðustu þremur leikjum.

Sevilla og Athletic Bilbao sem eru bæði að eiga mikil vonbrigðatímabil eigast svo við áður en stórleikur helgarinnar hefst.

Villarreal tekur þar á móti Real Madrid en sjö stig skilja liðin að í toppbaráttunni og er Villarreal með leik til góða.

Leikir dagsins
13:00 Rayo Vallecano - Osasuna
15:15 Valencia - Espanyol
17:30 Sevilla - Athletic Bilbao
20:00 Villarreal - Real Madrid
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 26 21 1 4 71 26 +45 64
2 Real Madrid 26 19 3 4 54 22 +32 60
3 Atletico Madrid 26 15 6 5 43 23 +20 51
4 Villarreal 26 16 3 7 48 31 +17 51
5 Betis 26 11 10 5 42 32 +10 43
6 Celta 26 10 10 6 36 28 +8 40
7 Espanyol 26 10 6 10 33 39 -6 36
8 Real Sociedad 26 9 8 9 38 38 0 35
9 Athletic 26 10 5 11 30 36 -6 35
10 Osasuna 26 9 6 11 30 30 0 33
11 Getafe 26 9 5 12 21 29 -8 32
12 Vallecano 26 7 9 10 26 32 -6 30
13 Sevilla 26 8 6 12 34 41 -7 30
14 Girona 26 7 9 10 27 42 -15 30
15 Valencia 26 7 8 11 27 39 -12 29
16 Alaves 26 7 6 13 23 34 -11 27
17 Elche 26 5 11 10 34 39 -5 26
18 Mallorca 26 6 6 14 29 42 -13 24
19 Levante 26 5 6 15 28 44 -16 21
20 Oviedo 26 3 8 15 16 43 -27 17
Athugasemdir
banner