Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   lau 24. maí 2025 18:58
Elvar Geir Magnússon
Besta deildin: Hallgrímur Mar hetja KA - ÍBV auðveld bráð Vals
Hallgrímur er loksins kominn á blað og KA fór upp úr fallsæti.
Hallgrímur er loksins kominn á blað og KA fór upp úr fallsæti.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu þegar hann var hetja KA í 1-0 sigri gegn Aftureldingu á Greifavellinum. Leikurinn hafði verið mjög bragðdaufur en Hallgrímur skoraði markið sem skildi liðin að á 80. mínútu.

„VÁÁÁÁÁÁ!! Hallgrímur er ekkert að tvínóna við hlutina og hamrar boltann með vinstri af sirka 25 metrunum upp í samskeytin fjær!" skrifaði Daníel Smári Magnússon í textalýsingu frá leiknum.

Sigurinn mikilvægi kemur KA upp úr fallsæti en liðið er í tíunda sæti, tveimur stigum fyrir neðan Aftureldingu. Afturelding hefur enn ekki náð að skora mark á útivelli og Stubbur í marki KA hafði lítið að gera í dag.

Þá fór Valur upp í fjórða sæti með öruggum 3-0 sigri gegn ÍBV. Öll mörkin þrjú komu í fyrri hálfleik en það flottasta skoraði Patrick Pedersen þegar hann lét vaða upp í vinkilinn. ÍBV er í níunda sæti.

KA 1 - 0 Afturelding
1-0 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('80 )
Lestu um leikinn

Valur 3 - 0 ÍBV
1-0 Jovan Mitrovic ('28 , sjálfsmark)
2-0 Patrick Pedersen ('29 )
3-0 Birkir Heimisson ('43 )
Lestu um leikinn
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 12 8 2 2 24 - 13 +11 26
2.    Breiðablik 11 7 1 3 19 - 16 +3 22
3.    Stjarnan 12 6 2 4 23 - 20 +3 20
4.    Vestri 12 6 1 5 13 - 9 +4 19
5.    Valur 11 5 3 3 24 - 16 +8 18
6.    Fram 11 5 0 6 18 - 17 +1 15
7.    FH 12 4 2 6 17 - 16 +1 14
8.    Afturelding 11 4 2 5 12 - 14 -2 14
9.    ÍBV 11 4 2 5 12 - 17 -5 14
10.    KR 11 3 4 4 30 - 26 +4 13
11.    KA 12 3 3 6 10 - 20 -10 12
12.    ÍA 12 3 0 9 13 - 31 -18 9
Athugasemdir
banner