Al Hilal undirbýr stórt tilboð í Fernandes - Bayern vill Mitoma - Delap og Doak til Everton?
   lau 24. maí 2025 20:54
Elvar Geir Magnússon
Ítalía: Rosaleg mótmæli á lokaleik AC Milan - „Farið heim!“
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tveir leikir voru í lokaumferð ítölsku A-deildarinnar í dag en það var lítið í húfi í þeim leikjum.

AC Milan lauk tímabilinu með sigri á föllnu liði Monza. Stuðningsmenn Milan eru ekki sáttir við tímabilið hjá sínu liði. Þeir stóðu fyrir mótmælum þar sem þeir stilltu sér upp í stúkunni til að mynda 'Go Home' eða 'Farið heim'.

Þessir eldheitu stuðningsmenn yfirgáfu svo leikvanginn á 20. mínútu og héldu mótmælum áfram fyrir utan leikvanginn.

Þeir voru að mótmæla bandarískum eigendum félagsins en einnig voru mótmæli fyrir utan höfuðstöðvar félagsins þar sem þúsundir söfnuðust saman með borða.

AC Milan tapaði á dögunum gegn Bologna í úrslitaleik ítalska bikarsins og mun ekki taka þátt í Evrópukeppni á næsta tímabili.

Bikarmeistararnir í Bologna eru með bikarþynnku og töpuðu gegn Genoa fyrr í dag. Bologna er í níunda sæti en Genoa í því þrettánda.

Milan 2 - 0 Monza
1-0 Matteo Gabbia ('64 )
2-0 Joao Felix ('74 )

Bologna 1 - 3 Genoa
0-1 Vitinha ('18 )
0-2 Lorenzo Venturino ('26 )
0-3 Lorenzo Venturino ('43 )
1-3 Riccardo Orsolini ('64 )
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Napoli 38 24 10 4 59 27 +32 82
2 Inter 38 24 9 5 79 35 +44 81
3 Atalanta 37 22 8 7 76 34 +42 74
4 Juventus 37 17 16 4 55 33 +22 67
5 Roma 37 19 9 9 54 35 +19 66
6 Lazio 37 18 11 8 61 48 +13 65
7 Milan 38 18 9 11 61 43 +18 63
8 Fiorentina 37 18 8 11 57 39 +18 62
9 Bologna 38 16 14 8 57 47 +10 62
10 Como 38 13 10 15 49 52 -3 49
11 Torino 37 10 14 13 39 43 -4 44
12 Udinese 37 12 8 17 39 53 -14 44
13 Genoa 38 10 13 15 37 49 -12 43
14 Cagliari 38 9 9 20 40 56 -16 36
15 Verona 37 9 7 21 32 65 -33 34
16 Parma 37 6 15 16 41 56 -15 33
17 Empoli 37 6 13 18 32 57 -25 31
18 Lecce 37 7 10 20 26 58 -32 31
19 Venezia 37 5 14 18 30 53 -23 29
20 Monza 38 3 9 26 28 69 -41 18
Athugasemdir