Keppni í Ólafsvík hefst á morgun
„Við förum í þetta mót með fullan huga," segir Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ólafsvík.
Ólafsvíkingar eru gestgjafar í E riðli undankeppni Futsal Cup sem er Evrópukeppni félagsliða í Futsal. Auk Víkinga leika í riðlinum, Hamburg frá Þýsklandi, Flamurtari Vlorë frá Albaníu og FC Differdange frá Lúxemborg.

„Við héldum riðil fyrir tveimur árum og það skapaðist rosaleg stemning í bænum, það var virkilega gaman að spila og vonandi verður þetta eins núna."
„Yfir vetrartímann er bara hægt að æfa í íþróttahúsi yfir vetrartímann. Við vitum hvað við getum í Futsal. Síðast vorum við bara einu skrefi frá því að komast í milliriðil," segir Ejub en viðtalið má sjá hér að ofan.
Allir leikirnir verða sýndir í beinni útsendingu á Sport TV
Þriðjudagur 25. ágúst
17:00 Hamburg Panthers - FC Differdange 03
19:30 Víkingur Ó. - KF Flamurtari Vlorë
Miðvikudagur 26. ágúst
17:00 KF Flamurtari Vlorë - Hamburg Panthers
19:30 Víkingur Ó. - FC Differdange 03
Föstudagur 28. ágúst
17:00 FC Differdange 03 - KF Flamurtari Vlorë
19:30 Hamburg Panthers - Víkingur Ó.