Leikur Íslands gegn Norður-Írlandi í umspili Þjóðadeildarinnar hefst klukkan 18:00. Íslenska liðið er komið saman í fyrsta sinn eftir vonbrigðin á EM. Leikið verður á Ballymena Showground vellinum, sem er í Ballymena, borg rétt utan Belfast. Aðeins um klukkustund er í leikinn og er búið að opinbera byrjunarlið Íslands.
Leikurinn er fyrri viðureign liðanna í umspilinu um sæti í A-deild í Þjóðadeildinni. Seinni leikurinn fer fram á Laugardalsvelli næstkomandi þriðjudag. Sigur í einvíginu setur Ísland í betri stöðu fyrir undankeppni HM 2027.
Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson gerir eina breytingu frá síðasta leik Íslands á EM sem var 4-3 tap gegn Noregi. Katla Tryggvadóttir víkur úr því liði og í hennar stað kemur Hlín Eiríksdóttir.
Ólafur Kristjánsson verður í fyrsta sinn á hliðarlínunni sem aðstoðarþjálfari landsliðsins, en Amir Mehica er jafnframt nýr í teyminu. Mehica er markvarðarþjálfari ásamt því að sjá um föst leikatriði.
Þrír nýliðar eru í hópnum en byrja þær allar á bekknum. Byrjunarliðið í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.



