Santos, Baleba, Wharton, Anderson, Gallagher og Stiller á lista Man Utd - Rashford vill ganga alfarið í raðir Barcelona
banner
   fös 24. október 2025 19:24
Ívan Guðjón Baldursson
Jóhannes Kristinn kom við sögu í sigri
Mark dæmt af Jóhanni Berg
Mynd: Kolding
Mynd: Al Dhafra
Jóhannes Kristinn Bjarnason kom við sögu í sigri Kolding gegn Middelfart í næstefstu deild danska boltans í dag.

Kolding vann 1-0 og er í efri hluta deildarinnar, með 21 stig eftir 14 umferðir. Liðið er aðeins þremur stigum frá toppsætinu sem stendur.

Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn í tapi Horsens gegn B.93. Horsens er í fjórða sæti, einu stigi fyrir ofan Kolding.

Í næstefstu deild í Hollandi kom Helgi Fróði Ingason inn af bekknum í tapi Helmond á heimavelli gegn Dordrecht. Helga var skipt inn þegar Helmond leiddi 1-0 og á nokkrum mínútum sneru gestirnir stöðunni sér í hag, svo lokatölur urðu 1-2.

Helmond er með 16 stig eftir tapið, þremur sitgum á eftir Dordrecht sem situr í umspilssæti um sæti í efstu deild.

Elías Már Ómarsson lék þá allan leikinn í fremstu víglínu í tapi Meizhou Hakka í kínversku deildinni, en liðið er tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið á lokametrunum.

Í Sameinuðu arabísku furstadæmunum duttu Jóhann Berg Guðmundsson og Milos Milojevic úr leik í bikarnum á sama tíma. Jói Berg setti boltann í netið en ekki dæmt mark vegna rangstöðu eftir athugun í VAR.

Hann lék fyrstu 74 mínúturnar og urðu lokatölur 1-1 en liðsfélagar Jóa Bergs í liði Al-Dhafra töpuðu leiknum í framlengingu.

Lærlingar Milos fóru þá alla leið í vítakeppni þrátt fyrir að vera sterkari aðilinn í venjulegum leiktíma og framlengingu. Allir leikmenn skoruðu úr sínum spyrnum nema síðasti spyrnumaðurinn í Al-Sharjah, liði Milos.

Brynjar Ingi Bjarnason var að lokum ekki með vegna meiðsla er Greuther Fürth steinlá í næstefstu deild í Þýskalandi. Brynjar og félagar eru með 10 stig eftir 10 umferðir.

Kolding 1 - 0 Middelfart

B.93 1 - 0 Horsens

Helmond 1 - 2 Dordrecht

Meizhou Hakka 1 - 4 Yunnan Yukun

Al-Sharjah 1 - 1 United FC

4-5 í vítaspyrnukeppni

Al-Wahda 3 - 1 Al-Dhafra

Greuther Furth 1 - 4 Karlsruher

Athugasemdir
banner