Aðeins einn sigur í átta leikjum á nýju úrvalsdeildartímabili. Liðið endaði með 43 stig á síðustu leiktíð, fyrir ofan Tottenham og Manchester United.
Nuno Espírito Santo tók við slöku liði West Ham United fyrir síðasta landsleikjahlé og hefur liðið náð einu jafntefli og tapað tveimur leikjum síðan.
Hamrarnir hafa átt hörmulega byrjun á tímabilinu og eru í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 4 stig eftir 8 umferðir. Þeir vonast til að snúa slæmu gengi við þegar þeir heimsækja Leeds United í kvöld.
Sky Sports segir að stjórnendur félagsins séu búnir að samþykkja að leikmannahópurinn sé ekki nægilega góður og því hefur verið ákveðið að fá inn nýja leikmenn í janúarglugganum. Markmiðið er að kaupa inn einn varnarmann, einn miðjumann og einn sóknarmann.
Liðinu virðist helst vanta fljóta leikmenn fyrir miðjuna og sóknina þrátt fyrir að hafa keypt mikið síðasta sumar. Hamrarnir keyptu meðal annars inn Mateus Fernandes á miðjuna, Malick Diouf í vörnina og fengu Callum Wilson á frjáslri sölu fyrir sóknina en það hefur ekki skilað árangri. Sölurnar á Nayef Aguerd og sérstaklega Mohammed Kudus vógu þungt.
Janúarglugginn er þó frægur fyrir að vera erfiður og það gæti reynst erfitt fyrir fallbaráttulið eins og West Ham að fá inn gæðaleikmenn sem passa við hópinn í vetur.
Sky segir að Nuno þjálfari hafi fengið loforð frá stjórnendum um að félagið getur krækt í nýja leikmenn í vetur til að styrkja hópinn.
Graham Potter þjálfaði West Ham áður fyrr og vildi hann leikmenn til félagsins sem eru góðir í því að halda boltanum. Nú er stefnubreyting á þeim málum því Nuno spilar mikinn skyndisóknarbolta og vill fá inn snögga leikmenn, sem eru agaðir í vörn og fljótir að bruna upp völlinn til að refsa andstæðingunum.
West Ham er ekki í sérlega góðri stöðu eftir að hafa eytt miklum fjármunum í nýja leikmenn á síðustu árum. Ef janúarglugginn klúðrast gæti orðið erfitt að virða fjárhagsreglur ensku deildarinnar í framtíðinni.
West Ham féll síðast úr úrvalsdeildinni fyrir rúmlega 14 árum síðan.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 31 | 21 | 7 | 3 | 61 | 22 | +39 | 70 |
| 2 | Man City | 30 | 18 | 7 | 5 | 60 | 28 | +32 | 61 |
| 3 | Man Utd | 31 | 15 | 10 | 6 | 56 | 43 | +13 | 55 |
| 4 | Aston Villa | 31 | 16 | 6 | 9 | 42 | 37 | +5 | 54 |
| 5 | Liverpool | 31 | 14 | 7 | 10 | 50 | 42 | +8 | 49 |
| 6 | Chelsea | 31 | 13 | 9 | 9 | 53 | 38 | +15 | 48 |
| 7 | Brentford | 31 | 13 | 7 | 11 | 46 | 42 | +4 | 46 |
| 8 | Everton | 31 | 13 | 7 | 11 | 37 | 35 | +2 | 46 |
| 9 | Fulham | 31 | 13 | 5 | 13 | 43 | 44 | -1 | 44 |
| 10 | Brighton | 31 | 11 | 10 | 10 | 41 | 37 | +4 | 43 |
| 11 | Sunderland | 31 | 11 | 10 | 10 | 32 | 36 | -4 | 43 |
| 12 | Newcastle | 31 | 12 | 6 | 13 | 44 | 45 | -1 | 42 |
| 13 | Bournemouth | 31 | 9 | 15 | 7 | 46 | 48 | -2 | 42 |
| 14 | Crystal Palace | 30 | 10 | 9 | 11 | 33 | 35 | -2 | 39 |
| 15 | Leeds | 31 | 7 | 12 | 12 | 37 | 48 | -11 | 33 |
| 16 | Nott. Forest | 31 | 8 | 8 | 15 | 31 | 43 | -12 | 32 |
| 17 | Tottenham | 31 | 7 | 9 | 15 | 40 | 50 | -10 | 30 |
| 18 | West Ham | 31 | 7 | 8 | 16 | 36 | 57 | -21 | 29 |
| 19 | Burnley | 31 | 4 | 8 | 19 | 33 | 61 | -28 | 20 |
| 20 | Wolves | 31 | 3 | 8 | 20 | 24 | 54 | -30 | 17 |
Athugasemdir



