Börsungar vilja varnarmann Bournemouth - Man Utd vill tvo leikmenn - Igor Thiago til Liverpool?
   mið 24. desember 2025 19:33
Brynjar Ingi Erluson
Afríkukeppnin: United-maðurinn bjargaði andliti meistaranna
Amad DIallo skoraði sigurmarkið
Amad DIallo skoraði sigurmarkið
Mynd: EPA
Fílabeinsströndin 1 - 0 Mósambík
1-0 Amad Diallo ('49 )

United-maðurinn Amad Diallo var hetja Fílabeinsstrandarinnar í 1-0 sigri liðsins á Mósambík í fyrri leik D-riðils í Afríkukeppninni í kvöld.

Diallo skoraði eina mark leiksins á 49. mínútu er Franck Kessie skallaði fyrirgjöf frá hægri inn á teiginn á Diallo sem afgreiddi boltann snyrtilega í vinstra hornið.

Fílabeinsströndin er ríkjandi meistari í keppninni en var ekki að spila sinn besta fótbolta. Mósambík gerði oft vel að halda þeim í skefjum og létu meistararnir sér nægja eitt mark.

Klukkan 20:00 mætast síðan Kamerún og Gabon í hinum leik riðilsins sem verður síðasti leikur umferðarinnar.


Athugasemdir
banner
banner