Trent áfram hjá Real Madrid - Arsenal á eftir Alvarez - Bayern og Liverpool berjast um Diomande
   sun 25. janúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Atlético og Barca á heimavelli
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Atlético Madrid byrjar daginn í spænska boltanum á heimavelli gegn Mallorca, áður en stórveldi Barcelona fær Real Oviedo í heimsókn.

Stórliðin þurfa bæði á sigrum að halda á viðkvæmum tímapunkti tímabilsins, þar sem Atlético er í þriðja sæti með 41 stig eftir 20 umferðir, átta stigum á eftir Barcelona í titilbaráttunni.

Ef Atlético misstígur sig í dag getur liðið svo gott sem kvatt allar þær vonir sem voru uppi um að blanda sér í titilbaráttuna.

Börsungar eru tveimur stigum á eftir erkifjendunum í Real Madrid og eiga leikinn í dag til góða. Þeir misstigu sig óvænt gegn Real Sociedad í síðustu umferð og þurfa núna að skipta um gír í spennandi titilbaráttu.

Real Sociedad fær svo Celta Vigo í heimsókn áður en Alavés spilar við Real Betis í lokaleik dagsins.

Leikir dagsins
13:00 Atletico Madrid - Mallorca
15:15 Barcelona - Real Oviedo
17:30 Real Sociedad - Celta Vigo
20:00 Alaves - Real Betis
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 21 16 3 2 45 17 +28 51
2 Barcelona 20 16 1 3 54 22 +32 49
3 Atletico Madrid 20 12 5 3 35 17 +18 41
4 Villarreal 20 13 2 5 37 21 +16 41
5 Espanyol 21 10 4 7 25 25 0 34
6 Betis 20 8 8 4 33 25 +8 32
7 Celta 20 8 8 4 28 20 +8 32
8 Osasuna 21 7 4 10 24 25 -1 25
9 Elche 21 5 9 7 29 29 0 24
10 Real Sociedad 20 6 6 8 26 28 -2 24
11 Sevilla 21 7 3 11 28 33 -5 24
12 Athletic 21 7 3 11 20 30 -10 24
13 Girona 20 6 6 8 20 34 -14 24
14 Valencia 21 5 8 8 22 33 -11 23
15 Vallecano 21 5 7 9 17 28 -11 22
16 Mallorca 20 5 6 9 24 30 -6 21
17 Getafe 20 6 3 11 15 26 -11 21
18 Alaves 20 5 4 11 16 25 -9 19
19 Levante 20 4 5 11 24 34 -10 17
20 Oviedo 20 2 7 11 11 31 -20 13
Athugasemdir
banner
banner