Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 14:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Albert ekki eini Íslendingurinn sem Roma sýnir áhuga
Hákon Arnar Haraldsson.
Hákon Arnar Haraldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert Guðmundsson er ekki eini Íslendingurinn sem ítalska félagið Roma hefur áhuga á í sumar.

Ítalski fjölmiðillinn Leggo segir núna frá því að Roma sé að sýna Hákoni Arnari Haraldssyni áhuga.

Frederic Massara, nýr yfirmaður fótboltamála hjá Roma, er að setja saman lista til að styrkja lið Gian Piero Gasperini fyrir næsta keppnistímabil.

Hákon Arnar er sagður á þeim lista en hann átti fínasta tímabil með Lille í Frakklandi á síðustu leiktíð.

Hákon Arnar hefur einnig verið orðaður við félög á Englandi.

Albert, sem var á láni hjá Fiorentina á síðasta tímabili, hefur verið orðaður við Atalanta, Bologna og Roma. Þá hefur hann einnig verið bendlaður við AC Milan.
Athugasemdir
banner