Framherjinn Liam Delap gekk nýlega til liðs við Chelsea eftir að hafa verið eftirsóttur af mörgum félögum. Hann skoraði 12 mörk fyrir Ipswich í 37 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Hann þekkir Enzo Maresca, núverandi stjóra Chelsea, sem var lykilatriði í ákvörðun hans.
Hann þekkir Enzo Maresca, núverandi stjóra Chelsea, sem var lykilatriði í ákvörðun hans.
„Ég hef spilað í þessu kerfi áður undir hans stjórn. Það er mjög svipað en með nokkrum breytingum. Ég þekki leikmennina og framtíðarsýn félagsins. Þetta heillaði mig," segir Delap en Maresca þjálfaði hann hjá unglingaliði Manchester City á sínum tíma.
„Maður veit ekki í dag hvort ákvörðunin sé rétt en maður verður að fylgja tilfinningum sínum. Ég tók mér smá tíma til að ræða við fólk í kringum mig áður en ég tók ákvörðun."
Samkvæmt fréttum í maí var Manchester United líklegast til að krækja í Delap en liðið missti af Evrípusæti á meðan Chelsea verður í Meistaradeildinni.
„Ákvörðun mín byggðist ekki alfarið á því, ég er líka að horfa til komandi ára. En það hjálpaði vissulega að taka þessa ákvörðun," segir hinn 22 ára gamli Delap.
Athugasemdir