
Heyrst hefur að landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir sé mögulega á heimleið þegar félagaskiptaglugginn opnar í sumar. Dagný, sem er 33 ára, hefur síðustu ár leikið með West Ham á Englandi.
Dagný sagði í apríl síðastliðnum frá því að hún hefði rætt við bæði félög á Íslandi og erlendis.
Dagný sagði í apríl síðastliðnum frá því að hún hefði rætt við bæði félög á Íslandi og erlendis.
Rætt var um Dagnýju í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann í dag, og nefndi þar Magnús Haukur Harðarson áfangastað í Bestu deildinni sem myndi henta henni mjög vel.
„Ég vona að Þróttaraliðið nái að styrkja sig. Það sem mér datt í hug var hvort við gætum sett Dagnýju Brynjarsdóttur í Þróttaraliðið," sagði Magnús Haukur í þættinum.
Hún gæti hentað vel inn í það leikkerfi sem Þróttur er að spila. Hún gæti bæði spilað á miðjunni og fremst, líkt og Unnur Dóra Bergsdóttir. Það myndi gefa Þrótti fleiri möguleika í tititlbaráttunni.
„Í þessa fölsku níu mögulega. Mér finnst Unnur Dóra samt hafa gert vel. Dagný á að fara í topplið og það er pláss í Þrótti. Það er ekki pláss í Breiðabliki og hún á ekki að fara í Val. Þarna er mögulega lið fyrir hana," sagði Magnús.
„Mér finnst þetta meika langmest sens," sagði undirritaður í þættinum.
Dagný, sem er uppalin í Selfossi, hefur áður leikið með Val en Valsliðið hefur átt erfitt uppdráttar í sumar og er ekki í neinni toppbaráttu, en spurning hvort Hlíðarendafélagið reyni að fá Dagnýju. Þróttur er með jafnmörg stig og Breiðablik á toppi deildarinnar.
Dagný, sem er á leið með íslenska landsliðinu á EM, hefur verið að æfa með Selfossi en hennar uppeldisfélag er núna í 2. deild.
Athugasemdir