Birgitta Rún Finnbogadóttir (Tindastóll)
Birgitta Rún Finnbogadóttir, leikmaður Tindastóls, er sterkasti leikmaður tíundu umferðar Bestu deildar kvenna í boði Steypustöðvarinnar.
Hún átti stórkostlegan leik þegar Tindastóll lagði FHL að velli í Fjarðabyggðarhöllinni.
Hún átti stórkostlegan leik þegar Tindastóll lagði FHL að velli í Fjarðabyggðarhöllinni.
„Var frábær hér í dag, með tvö mjög mikilvæg og góð mörk og stoðsendinguna í fyrsta markinu. Öflug í wingback hjá Stólunum, alltaf hætta af henni þegar hún kemst af stað og átti laglegar fyrirgjafir í kvöld," skrifaði Snæbjört Pálsdóttir í skýrslunni frá leiknum.
Rætt var um Birgittu í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann, fyrr í dag. Hún er fædd árið 2008 en er þrátt fyrir það lykilmaður í liði Tindastóls.
„Þetta er leikmaður sem vert er að fylgjast með," sagði Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram.
„Þú ert með Elísu (Bríet Björnsdóttur) og svo ertu með Birgittu, en þær eru jafngamlar. Elísa tekur kannski fyrirsagnirnar hérna hjá okkur en Birgitta getur farið jafnlangt og Elísa. Þær eru allt öðruvísi leikmenn en eiginleikarnir sem þú hefur, þú kennir þetta ekki. Leikskilningurinn, staðsetningar..." sagði Magnús Haukur Harðarson og bætti Óskar Smári um að hún væri með hraða og væri hugrakkur leikmaður.
Hægt er að hlusta á Uppbótartímann í heild sinni hér fyrir neðan.
Sterkastar í síðustu umferðum:
1. umferð - Samantha Smith (Breiðablik)
2. umferð - Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir (Víkingur R.)
3. umferð - Fanndís Friðriksdóttir (Valur)
4. umferð - Alda Ólafsdóttir (Fram)
5. umferð - Sandra María Jessen (Þór/KA)
6. umferð - Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik)
7. umferð - Birna Kristín Björnsdóttir (FH)
8. umferð - Thelma Karen Pálmadóttir (FH)
9. umferð - Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (Stjarnan)
Athugasemdir