Skemmtilegasta myndbandið sem birtist á samfélagsmiðlum núna um helgina var án efa myndband af Lionel Messi, einum besta fótboltamanni allra tíma, að faðma íslenskan strák fyrir leik Inter Miami á HM félagsliða.
Drengurinn sem um ræðir er Ægir Þór Sævarsson, 13 ára gamall strákur sem var greindur með vöðvarýrnunarsjúkdóminn Duchenne fyrir nokkrum árum síðan.
Drengurinn sem um ræðir er Ægir Þór Sævarsson, 13 ára gamall strákur sem var greindur með vöðvarýrnunarsjúkdóminn Duchenne fyrir nokkrum árum síðan.
Vísir segir frá því að í gegnum félagið Umhyggju, sem vinnur að hag langveikra barna og fjölskyldna, hafi Ægir og fjölskylda hans komist í samband við mann með tengsl innan FIFA, sem stendur að mótinu.
„Mér skilst að það hafi verið mikil vinna bak við tjöldin til að koma þessu í gang," sagði Hulda Björg Svansdóttir, móðir Ægis, við Vísi en hún deildi myndbandinu.
Í myndbandinu lítur Messi til Ægis og gengur til hans. Argentínski snillingurinn faðmar hann og áritar treyju hans sem mun núna fara upp í ramma á vegg. Þarna var risastór draumur að rætast en myndbandið má sjá hér fyrir neðan.
Messi, sem hefur átt ótrúlegan fótboltaferil, setti svo kirsuberið ofan á kökuna með því að skora beint úr aukaspyrnu í leiknum.
@hopewithhulda ? Today is a day we will carry in our hearts forever. ? We experienced something truly unforgettable — a moment that felt like magic. Thanks to some incredibly kind and generous souls, Ægir got to meet his hero, Lionel Messi — something he’s dreamed about since he was just five years old. As a little boy, Ægir dreamed of becoming a football player. But life had other plans. When you’re a parent of a child with a rare disease, moments like this carry a different kind of weight — they become sacred. Seeing his eyes light up, his face beam with joy, and watching him receive a hug and an autograph from Messi himself... I couldn’t hold back the tears. It wasn’t just a meeting — it was a dream come true, a healing moment, and a reminder of all the beauty that still exists in this world. Messi — thank you for being the kind, humble person you are. You may never fully realize what this meant to us, but you gave our boy something we will never forget. And that free kick goal? The perfect cherry on top ????? From the bottom of my overflowing heart, thank you to everyone who made this miracle possible: ???? Ann Pierce and Pedro Coley at FIFA ???? The amazing staff at Mercedes Benz Stadium ???? Salman Azouzi — for helping make the impossible, possible Life doesn’t get much better than this. ?? #life #hope #myjourney #fifa #clubworldcup #messi #lionelmessi #formyson #miracle #dreamscometrue #dream #football #positivity #positivevibes #raremama #rarediseaseawareness #duchenneawareness #awareness #kindness #inclusion @FIFA @FIFAClubWorldCup ? original sound - Hope with Hulda
Athugasemdir