Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 13:50
Elvar Geir Magnússon
Sérfræðingurinn í föstum leikatriðum að taka við
Keith Andrews.
Keith Andrews.
Mynd: Brentford
Breska ríkisútvarpið segir að Brentford sé nálægt því að ráða Keith Andrews sem nýjan stjóra. Hann mun þá taka við af Thomas Frank sem lét af störfum til að taka við Tottenham.

Andrews hefur verið í þjálfarateymi Brentford í eitt ár en hann hefur verið sérfræðingur í föstum leikatriðum. BBC segir að viðræður félagsins við hann gangi vel,

Andrews er 44 ára gamall og þetta yrði hans fyrsta stjórastarf. Hann lagði skóna á hilluna 2015 eftir flottan feril þar sem hann lék meðal annars 35 landsleiki fyrir Írland.

Eftir að skórnir fóru upp á hillu þá hefur hann verið aðstoðarþjálfari MK Dons, írska landsliðsins og Sheffield United.

Frank stýrði Brentford í sjö ár en hann kom liðinu upp í ensku úrvalsdeildina 2021.
Athugasemdir
banner
banner