Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 15:30
Elvar Geir Magnússon
Tottenham gæti virkjað riftunarákvæði Eze
Mynd: EPA
Tottenham Hotspur gæti virlkjað riftunarákvæði í samningi Eberechi Eze, stjörnuleikmanns Crystal Palace.

Mirror segir að Eze sé með 68 milljóna punda riftunarákvæði.

Tottenham vann Evrópudeildina og tryggði sér þar með sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Thomas Frank er tekinn við liðinu og vonast til að styrkja sóknarmöguleika liðsins.

Tottenham hefur meðal annars sýnt Bryan Mbeumo leikmanni Brentford og Antoine Semenyo vængmanni Bournemouth áhuga.

Eze er algjör lykilmaður hjá Palace og skoraði eina markið í úrslitaleik FA-bikarsins þegar Palace mætti Manchester City og vann sinn fyrsta stóra titil.

Ef Eze kemur til Spurs gæti það opnað dyrnar fyrir því að félagið selji Son Heung-min en gríðarlegur áhugi er á honum frá Sádi-Arabíu.
Athugasemdir
banner