Man Utd vill Kane - Arsenal hefur áhuga á Yildiz - Villa vill kaupa Sancho
   fim 25. september 2025 19:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalski bikarinn: Mikael Egill á bekknum í endurkomusigri
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Mikael Egill Ellertsson var ónotaður varamaður þegar Genoa komst áfram í 16-liða úrslit í ítalska bikarnum í kvöld.

Genoa tók á móti Empoli sem er í 16. sæti í Seríu B.

Empoli komst yfir í fyrri hálfleik en Morten Frendrup jafnaði metin fyrir Genoa stuttu síðar og staðan var 1-1 þegar flautað var til hálfleiks.

Genoa komst yfir snemma í seinni hálfleik og hinn 18 ára gamli Jeff Ekhator innsiglaði sigur Genoa undir lokin.

Stóru liðin í Seríu A koma inn í næstu umferð þar sem Genoa mætir Atalanta.
Athugasemdir
banner