Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   lau 25. október 2025 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Man Utd fór upp fyrir Liverpool - Þriðji sigurinn í röð
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Manchester Utd 4 - 2 Brighton
1-0 Matheus Cunha ('24 )
2-0 Casemiro ('34 )
3-0 Bryan Mbeumo ('61 )
3-1 Danny Welbeck ('74 )
4-1 Bryan Mbeumo ('90 )
4-2 Charalampos Kostoulas ('90 )

Matheus Cunha kom Man Utd yfir þegar hann skoraði með skoti í fjærhornið rétt fyrir utan vítateiginn eftir sendingu frá Casemiro. Hans fyrsta mark fyrir Man Utd.

Tíu mínútum síðar vann Man Utd boltann hátt á vellinum og boltinn barst til Casemiro sem skoraði með skoti sem fór af varnarmanni og í netið.

Benjamin Sesko gat komið Man Utd þremur mörkum yfir undir lok fyrri hálfleiks en skaut framhjá úr góðu færi. Stuttu síðar fékk Georginio Rutter dauðafæri en hitti ekki boltann.

Eftir klukkutíma leik fór Bryan Mbeumo langt með að tryggja Man Utd sigurinn þegar hann skoraði með skoti í nærhornið.

Þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma skoraði Danny Welbeck laglegt mark beint úr aukaspyrnu og gaf Brighton smá von um að ná einhverju úr leiknum. Sjö mínútum var bætt við og þegar tæpar tvær mínútur voru liðnar af uppbótatímanum minnkaði Charalampos Kostoulas muninn enn frekar þegar hann skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu.

Bryan Mbeumo innsiglaði sigur Man Utd í blálokin þegar hann slapp í gegn og negldi boltanum í netið.

Man Utd er komið upp í 4. sæti deildarinnar eftir þriðja sigurinn í röð með 16 stig, stigi á undan Liverpool sem á leik til góða gegn Brentford á eftir. Brighton er í 12. sæti með 12 stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 31 15 10 6 56 43 +13 55
4 Aston Villa 31 16 6 9 42 37 +5 54
5 Liverpool 31 14 7 10 50 42 +8 49
6 Chelsea 31 13 9 9 53 38 +15 48
7 Brentford 31 13 7 11 46 42 +4 46
8 Everton 31 13 7 11 37 35 +2 46
9 Fulham 31 13 5 13 43 44 -1 44
10 Brighton 31 11 10 10 41 37 +4 43
11 Sunderland 31 11 10 10 32 36 -4 43
12 Newcastle 31 12 6 13 44 45 -1 42
13 Bournemouth 31 9 15 7 46 48 -2 42
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 31 7 12 12 37 48 -11 33
16 Nott. Forest 31 8 8 15 31 43 -12 32
17 Tottenham 31 7 9 15 40 50 -10 30
18 West Ham 31 7 8 16 36 57 -21 29
19 Burnley 31 4 8 19 33 61 -28 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Slapp
Athugasemdir
banner
banner