Manchester United ætlar óvænt að reyna að fá enska vinstri bakvörðinn Myles Lewis-Skelly frá Arsenal
Hugarburðarbolti GW 31 Met í rauðum spjöldum!
Enski boltinn - Allir íslenskir stuðningsmenn í fýlu
Niðurtalningin - Tólf ára bið senn á enda
Útvarpsþátturinn - Uppfærð spá og fiðringurinn magnast
Niðurtalningin - Serbneskir andar svífa yfir vötnum
Niðurtalningin - Keflvíkingar láta sig dreyma um Forsetabikarinn
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs Stjarnan
Enski boltinn - Þetta er búið og er Bruno bestur?
Hugarburðarbolti GW 30 Mad Max frumsýning í London.
Alfons ræðir um endurkomuna til Hollands, landsliðið og ævintýri Bodö Glimt
Útvarpsþátturinn - Bjartara á Brekkunni og heitir í enska
Fótbolta nördinn - Dómarar vs Njarðvík
Uppbótartíminn - Landsliðið, stutt í Bestu og hvert fer Sara Björk?
Kjaftæðið - Stóra Bestu deildar yfirferðin
Útvarpsþátturinn - Mánuður í Bestu deildina
Hugarburðarbolti GW 29 Svaðalega Salah salan.
Enski boltinn - Hveitibrauðsdagarnir að baki
Kjaftæðið - Tottenham-menn skíthræddir við fall
Hugarburðarbolti GW 28 Markvörður með stálhönd.
Enski boltinn - Heimskur Neto, trylltur Sesko og Spurs í djúpum skít
banner
   lau 26. mars 2016 14:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arnór Ingvi: Er með sjálfstraustið í botni
Arnór Ingvi Traustason
Arnór Ingvi Traustason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var kannski ekki okkar besti leikur, en það var sætt að setja eitt í lokin,“ sagði Arnór Ingvi Traustason í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net.

Arnór Ingvi skoraði mark Íslands í 2-1 tapinu gegn Dönum síðastliðinn fimmtudag, en Arnór hefur stimplað sig vel inn í íslenska landsliðshópinn.

„Um leið og maður fær sénsinn þá reynir maður að nýta hann sem best og ég reyni að gera mitt allra besta. Ég náði inn þarna marki sem var kærkomið,“

Arnór Ingvi varð sænskur meistari með liði sínu Norrköping í október og var í framhaldi af því valinn í landsliðshópinn. Hann er sjálfur ánægður með hvernig hlutirnir hafa gengið og er með sjálfstraustið í botni.

„Seinasta ár var mjög gott fyrir mig og bara fyrir Norrköping í heild. Ég dett svo inn í landsliðið í nóvember og reyni að halda áfram að standa mig og er núna búinn að vera í hóp í nóvember, janúar og núna. Maður getur nú alveg stigið feilspor, en ég er með sjálfstraustið í botni.“

„Það er gríðarlega skemmtilegt að vera í landsliðshópnum og þegar maður er kominn hér inn þá vill maður ekkert detta út. Strákarnir hafa hjálpað mér mikið að komast meira og meira inn í hópinn og mér líður vel.“


Ísland mætir Grikklandi á þriðjudaginn og Arnór segir ekkert annað en sigur koma til greina í þeim leik.

„Það eru núna Grikkirnir og við erum aðeins búnir að fara yfir þá, en það kemur ekkert annað til boða en að vinna þann leik. Við erum búnir að tapa fjórum eða fimm vináttulandsleikjum og við eigum að geta gert betur,“ sagði Arnór Ingvi, en hér í spilaranum að ofan má hlusta á viðtalið við hann í heild sinni.
Athugasemdir
banner