Arsenal gerir tilboð í Gyökeres - Man Utd skipuleggur tilboð í Delap - Spurs býðst Sane
   mán 26. maí 2025 06:00
Elvar Geir Magnússon
Í BEINNI - Hátíðarhöldin í Liverpoolborg
Mynd: EPA
Það er mikið um dýrðir í Liverpoolborg í dag en félagið fagnar Englandsmeistaratitlinum með skrúðgöngu og öllu tilheyrandi.

Samkvæmt dagskrá eiga leikmenn Liverpool að leggja af stað á þaklausri rútu klukkan 13:30 að íslenskum tíma en það ætti ekki að koma á óvart þó tafir yrði á þeirri dagskrá.

Liverpool var langbesta lið ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili og vann sinn 20. landsmeistaratitil. Það var Covid heimsfaraldur síðast þegar Liverpool fagnaði titlinum svo stuðningsmenn liðsins leggja mikla áherslu á að njóta dagsins.

Hægt er að fylgjast með stemningunni í beinni í sjónvarpinu hér að neðan:


Athugasemdir
banner
banner