Isak vill enn fara - Vlahovic orðaður við Liverpool og Newcastle - Lammens færist nær Manchester United
   mið 27. ágúst 2025 18:42
Brynjar Ingi Erluson
Lærisveinar Freys flugu inn í Evrópudeildina
Mynd: Sportsklubben Brann
Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Brann munu spila í deildarkeppni Evrópudeildarinnar á þessu tímabili eftir að hafa unnið öruggan 4-0 útisigur á AEK Larnaca frá Kýpur í kvöld.

Brann vann fyrri leikinn 2-1, á heimavelli sínum sem var kannski ekkert talið neitt frábær staða.

Hlutirnir gengu frábærlega fyrir Brann í kvöld. Enric Saborit, varnarmaður Larnaca, sá rautt á 39. mínútu og í lok fyrri hálfleiks skoraði Niklas Castro fyrir Brann.

Norðmennirnir héldu áfram að hamra á Larnaca í þeim síðari með þremur mörkum og flugu þeir norsku örugglega áfram inn í deildarkeppni Evrópudeildarinnar.

Eggerton Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon byrjuðu hjá Brann, en fóru báðir af velli í síðari hálfleik.

Síðast spilaði Brann í riðlakeppninni tímabilið 2007-2008 og hét keppnin þá UEFA-bikarinn, en nafninu var breytt í Evrópudeildina aðeins ári síðar.


Athugasemdir
banner
banner