Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   þri 28. janúar 2025 11:30
Ívan Guðjón Baldursson
Aston Villa og City Group eru með í baráttunni um Nypan
Mynd: Rosenborg
Arsenal hefur verið sterklega orðað við norska táninginn Sverre Nypan sem er lykilmaður í liði Rosenborg þrátt fyrir ungan aldur.

Arsenal er þó ekki eina félagið sem er að reyna að krækja í Nypan vegna þess að City Group og Aston Villa eru einnig með í baráttunni um þennan efnilega miðjumann.

Hjá City Group myndi Nypan byrja að skipta yfir til Girona á Spáni með það sem markmið að komast svo til Manchester City.

Óljóst er hvaða félag leiðir kapphlaupið en Nypan er nýlega orðinn 18 ára gamall. Hann skoraði 8 mörk og gaf 7 stoðsendingar í 28 deildarleikjum í fyrra.

Nypan ætlar að taka sér góðan tíma til að taka ákvörðun um framtíðina. Hann ætlar að skoða aðstæður hjá félögunum gaumgæfilega áður en hann tekur lokaákvörðun.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner
banner