Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   þri 28. október 2025 21:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enski deildabikarinn: Ævintýri Grimsby lokið - Öruggur sigur hjá Brentford
Fabio Carvalho
Fabio Carvalho
Mynd: EPA
Hákon Rafn Valdimarsson
Hákon Rafn Valdimarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grimsby 0 - 5 Brentford
0-1 Mathias Jensen ('22 )
0-2 Keane Lewis-Potter ('26 )
0-3 Reiss Nelson ('43 )
0-4 Fabio Carvalho ('54 , víti)
0-5 Nathan Collins ('75 )

Grimsby er úr leik í enska deildabikarnum eftir að hafa staðið sig vel í keppninni en liðið vann Man Utd eftirminnilega í síðustu umferð.

Grimsby fékk Brentford í heimsókn en Hákon Rafn Valdimarsson var í markinu hjá Brentford. Þetta var mjög rólegt kvöld á skrifstofunni hjá honum.

Mathias Jensen kom Brentford yfir þegar hann skoraði með góðu skoti í fjærhornið. Keane Lewis-Potter bætti öðru markinu við stuttu síðar en hann skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Reiss Nelson.

Nelson bætti síðan þriðja markinu við undir lok fyrri hálfleiks. Fabio Carvalho gerði svo út um leikinn með marki úr vítaspyrnu snemma í seinni hálfleik. Nathan Collins kom inn á sem varamaður og innsiglaði sigurinn með skallamarki eftir hornspyrnu frá Jensen.

Jason Daði Svanþórsson kom inn á hjá Grimsby eftir tæplega klukkutíma leik en náði ekki að hafa áhrif á leikinn.


Slapp
Athugasemdir
banner