Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur átt frábært tímabil á láni hjá Inter í ítalska boltanum og var valin í lið ársins hjá DAZN sjónvarpsveitunni.
Cecilía Rán er aðeins 21 árs gömul en er nú þegar orðin ein af betri markvörðum Evrópu. Hún er aðalmarkvörður íslenska landsliðsins og á ellefu A-landsleiki að baki.
Cecilía er samningsbundin þýska stórveldinu FC Bayern en hefur leikið á láni hjá Inter á tímabilinu. Hún hefur staðið sig gríðarlega vel á fyrri hluta tímabils og er þess vegna valin í liðs ársins.
Inter er í öðru sæti ítölsku deildarinnar með 28 stig eftir 13 leiki og hefur liðið aðeins fengið 7 mörk á sig á tímabilinu, langminnst allra liða í Serie A.
Cecilía hefur verið algjör lykilmaður í liði Inter og hefur nokkrum sinnum verið besti leikmaður vallarins í leikjum liðsins.
Í liði ársins má finna tvo leikmenn úr liði Inter, þrjá úr liði Juventus og fimm úr liði Roma. Þá er einn leikmaður Fiorentina einnig í liðinu.
Lið ársins 2024:
Markvörður:
Cecilía Rán Rúnarsdóttir (Inter)
Varnarmenn:
Marina Georgieva (Fiorentina)
Saki Kumagai (Roma)
Emma Kullberg (Juventus)
Estelle Cascarino (Juventus)
Miðjumenn:
Manuela Giugliano (Roma)
Giada Greggi (Roma)
Lina Magull (Inter)
Sóknarmenn:
Valentina Giacinti (Roma)
Sofia Cantore (Juventus)
Evelyne Viens (Roma)
The Serie A Femminile Best XI of 2024 is here! ????
— DAZN Women's Football (@DAZNWFootball) December 28, 2024
???? Watch the Serie A Femminile live and free on DAZN!
???? https://t.co/dIfKpURNP3 #SerieAFemminile pic.twitter.com/RCV2MADAg4
Athugasemdir

