Albert Guðmundsson, leikmaður Íslands, var ekki sáttur við tap liðsins gegn Argentínu í Alabama í erfiðum leik.
Lestu um leikinn: Argentína 3 - 0 Ísland
„Þetta var alvöru áskorun. Við vorum auðvitað að spila á móti ríkjandi heimsmeisturum. Þetta var ekki auðvelt í dag. Við erum ekki sáttir með 3-0 en auðvitað er það heiður að fá að spila á móti þessu liði. Við hefðum getað gert betur í ákveðnum stöðum en svona er þetta bara. Við tökum þetta og lærum af þessu. Þetta er gott veganesti fyrir þjóðardeildina í vetur,“ sagði Albert í viðtali við Fotbolti.net eftir leik.
„Við vorum komnir í 1-0 og svo lendum við 2-0 undir, þá erum við byrjaðir að elta og þurfum að stíga aðeins ofar og þá slitnar á milli línanna hjá okkur. Eitt mark í viðbót, við ætlum ekki að rýna of mikið í það. Við fengum ágætis stöður inn á milli og við vildum auðvitað meira af því en við bara lifum og lærum. Áfram gakk.“
Lionel Messi fékk flestar fyrirsagnirnar eftir innkomu hans í leiknum á 70. mínútu.
„Þetta er auðvitað geitin í leiknum. Þannig að jú, besti leikmaður í heimi kemur inn á og fer beint í að senda stungusendingu og þeir fá víti sem hann skorar sjálfur úr. Það er svolítið vendipunkturinn í leiknum, annað markið. Hann gerði herslumuninn um leið og hann kom inn á,“ sagði Albert Guðmundsson, leikmaður Íslands.
Albert svaraði einnig spurningum um orðrómum um framtíðina sína og treyjuskipti Jón Dags við Messi. Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.
























