Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   lau 29. nóvember 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Landsliðsmaður U17 semur við Breiðablik
Mynd: Breiðablik
Egill Valur Karlsson er búinn að skrifa undir sinn fyrsta samning við knattspyrnudeild Breiðabliks en hann er aðeins 16 ára gamall.

Egill Valur hefur verið lykilmaður upp yngri flokkana hjá Blikum og er með 11 landsleiki að baki fyrir unglingalandsliðin, síðast með U17 liðinu í undankeppni EM í október.

Hann hefur komið við sögu í einum KSÍ-leik með aðalliði Breiðabliks, þegar hann fékk að spila síðustu mínúturnar gegn Fram í Lengjubikarnum í febrúar síðastliðnum.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner