Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   lau 29. nóvember 2025 13:42
Brynjar Ingi Erluson
Lisandro gæti spilað á morgun
Mynd: EPA
Argentínski miðvörðurinn Lisandro Martínez gæti spilað með Manchester United gegn Crystal Palace á morgun.

Martínez hefur verið frá síðan í febrúar er hann sleit krossband einmitt í leik gegn Palace.

Hann hefur lokið endurhæfingarferlinu og er nú kominn með leyfi til þess að spila með United.

Argentínumaðurinn var í hópnum gegn Everton á mánudag en kom ekki við sögu. Það er möguleiki á að hann fái mínútur gegn Palace á morgun.

„Ef hann er á bekknum þá er hann klár. Að sjálfsögðu þurfum við að stýra mínútunum, en ef hann er á bekknum þá er hann klár að spila,“ sagði Ruben Amorim, stjóri Man Utd, við MUTV.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner