Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fim 30. janúar 2025 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Chilwell fastur í Chelsea?
Samkvæmt Daily Mail er ekki útlit fyrir að Ben Chilwell muni yfirgefa Chelsea áður en félagaskiptaglugginn lokar.

Chilwell er út í kuldanum hjá Chelsea en það virðist sem svo að ekkert félag hafi áhuga á því að krækja í hann og hans launapakka.

Chilwell hefur aðeins komið við sögu í einum leik á tímabilinu en hann kom inn á sem varamaður í bikarleik gegn Barrow úr D-deild í september síðastliðnum.

Hinn 28 ára gamli Chilwell gæti farið í gegnum heilt tímabil án þess að spila þýðingarmikinn fótbolta.

Chelsea hefur reynt að losa sig við Chilwell í síðustu tveimur gluggum en það hefur ekkert gengið.

Hann er samningsbundinn Chelsea til ársins 2027.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner
banner