Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
banner
   fim 30. janúar 2025 12:24
Elvar Geir Magnússon
Fundaði með KSÍ en hefur nú framlengt hjá Mainz
Bo Henriksen.
Bo Henriksen.
Mynd: EPA
Daninn Bo Henriksen hefur skrifað undir nýjan samning við þýska úrvalsdeildarfélagið Mainz en Tipsbladet segir að hann sé nú bundinn til sumarsins 2027.

Hann hefur gert magnaða hluti við stjórnvölinn hjá Mainz en hann tók við liðinu fyrir ári síðan, þegar það var í fallhættu, og kom því á ótrúlegt skrið. Liðið er núna í sjötta sæti Bundesligunnar.

Henriksen var einn af þremur einstaklingum sem KSÍ ræddi við um landsliðsþjálfarastarf Íslands. Hann hefur sjálfur sagt að draumastarf sitt sé að stýra danska landsliðinu en varð sár yfir því að danska sambandið ræddi ekki við hann þegar Kasper Hjulmand hætti.

Tipsbladet segir að Henriksen sé á blaði hjá enskum úrvalsdeildarfélögum. Hann er fyrrum leikmaður Vals, Fram og ÍBV og þekkir því íslenskan fótbolta vel.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 27 22 4 1 97 25 +72 70
2 Dortmund 27 18 7 2 58 28 +30 61
3 Stuttgart 27 16 5 6 56 36 +20 53
4 RB Leipzig 27 15 5 7 53 35 +18 50
5 Hoffenheim 27 15 5 7 54 39 +15 50
6 Leverkusen 27 13 7 7 52 36 +16 46
7 Frankfurt 27 10 8 9 50 51 -1 38
8 Freiburg 27 10 7 10 39 44 -5 37
9 Union Berlin 27 8 7 12 31 46 -15 31
10 Augsburg 27 9 4 14 33 50 -17 31
11 Mainz 27 7 9 11 33 42 -9 30
12 Hamburger 27 7 9 11 31 40 -9 30
13 Gladbach 27 7 8 12 33 46 -13 29
14 Werder 27 7 7 13 30 47 -17 28
15 Köln 27 6 8 13 38 47 -9 26
16 St. Pauli 27 6 6 15 24 44 -20 24
17 Wolfsburg 27 5 6 16 35 57 -22 21
18 Heidenheim 27 3 6 18 27 61 -34 15
Slapp
Athugasemdir
banner