Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fim 30. janúar 2025 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man Utd getur ekki keypt Nkunku núna
Manchester United getur ekki keypt Christopher Nkunku í þessum félagaskiptaglugga.

Félagið hefur ekki efni á því að gera það á þessari stundu samkvæmt Sky Sports. United þarf að selja leikmenn áður en það gerist en það gæti verið að félagið reyni að fá Nkunku á láni.

Möguleiki er á því að Alejandro Garnacho fari áður en glugginn lokar en Chelsea hefur áhuga á því að krækja í hann. Ef United selur Garnacho, þá er möguleiki á að Man Utd muni kaupa Nkunku.

En Nkunku hefur líka áhuga á Bayern München og þar er leikmaður sem Chelsea hefur líka áhuga á, Mathys Tel.

Það verður áhugavert að sjá hvað gerist í þessum málum áður en glugginn lokar.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner
banner