Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fim 30. janúar 2025 23:16
Ívan Guðjón Baldursson
Tilbúnir til að borga 60 milljónir fyrir Álex Baena
Sádi-arabíska félagið Al-Ahli hefur mikinn áhuga á að kaupa Álex Baena frá Villarreal.

Félagið er sagt vera reiðubúið til að borga upp riftunarákvæðið í samningi Baena sem nemur 60 milljónum evra.

Villarreal vonast til að halda í þennan lykilmann sinn en Baena er 23 ára gamall og með þrjú og hálft ár eftir af samningi.

Baena er vinstri kantmaður að upplagi en getur einnig spilað á hægri kanti eða sem sóknartengiliður.

Baena fær því sjálfur að ráða sinni framtíð, hvort hann verði áfram hjá Villarreal eða samþykki launahækkun til að spila í Sádi-Arabíu.

Hjá Al-Ahli myndi Baena spila með leikmönnum á borð við Ivan Toney, Gabri Veiga, Roberto Firmino og Riyad Mahrez.
Slapp
Athugasemdir
banner